HeiM verkefnið kynnt á Vísindavöku Rannsís 2019

HeiM at the Researcher's Night in Iceland

Verkefnið HeiM, Heritage in Motion, sem á íslensku er nefnt Sjallar leiðir að menningararfinum, var glæsilega kynnt í bás U3A Reykjavík á Vísindavöku Rannís þann 28. september 2019.

Kynning á HeiM var á stórum poster, 200 x 85 cm, gerðum  af  Hnotskógur, hönnunar- og auglýsingafyrirtæki, fjórblöðungur um verkefnið lá frammi sem og þrjú fréttabréf verkefnisins. Einnig var hægt að skoða myndasýningu um verkefnið þar sem sagt var frá markmiðum þess og helstu atriðum og samstarfsaðilarnir á Spáni, Póllandi og Króatíu kynntir. Niðurstöður úr tveimur könnunum á vegum HeiM verkefnisins, báðar um menningararfinn og leiðir að honum voru einnig kynntar. Önnur könnunin  var gerð meðal sérfræðingaráðs íslenska HeiM teymisins í byrjun árs 2019 og hin  meðal félaga í U3A Reykjavík og á fésbókarsíðu samtakanna í júní 2019.

Vísindavaka Rannís er haldin ár hvert þriðju helgina í september um leið og hún er haldin  í helstu borgum Evrópu undir nafninu The Researchers' Night. Á Vísindavökunni koma háskólar, stofnanir, fyrirtæki og félög saman við að kynna það nýjasta í rannsóknum og er Vakan  vel sótt af almenningi, ungum sem öldnum. Margir þeirra, einkum þeir sem eru 50 ára og eldri, komu í bás U3A Reykjavík þar sem samtökin voru kynnt sem og Vöruhús tækifæranna, vefgáttin með tækifærum fyrir 50 ára og eldri, ásamt  verkefninu HeiM.

 

HeiM at the Researcher's Night in Iceland

 

HeiM at the Researcher's Night in Iceland